Útför Johns Snorra í dag: „Þú lifðir lífinu lifandi … og stundum svolítið hratt“

Útför fjallgöngumannsins Johns Snorra Sigurjónssonar fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag.

John Snorri var í hópi fjall­göngu­manna sem freistuðu þess að verða fyrstir til að klífa K2, næst­hæsta fjall heims, að vetri til. Viða­mikil leit var gerð að John Snorra og fé­lögum hans, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr en leitin bar ekki árangur. Hefur þeirra verið saknað frá 5. febrúar síðastliðnum.

John Snorri var mikill náttúruunnandi og hafði einstakan áhuga á hæstu fjöllum heims. Hann varð fyrsti Íslendingurinn til að komast á topp K2 í Pakistan og hafði sett stefnuna á að verða sá fyrsti til að klífa fjallið að vetri til. Í Morgunblaðinu í dag minnast margir þessa einstaka manns.

Karen Kristjánsdóttir, systir Johns Snorra, minnist bróður síns sem var alltaf hress og kátur og sá björtu hliðarnar á flestu.

„Það var fátt ef nokkuð sem þú hræddist, og áhættuatriðin byrjuðu um leið og þú fórst að standa í fæturna. Endalaus kjarkur og þor. Sólarhringurinn virtist oft lengri hjá þér en mér. Það var ekki verið að eyða tímanum í óþarfa sjónvarpsgláp, þú varst alltaf að skapa ný ævintýri, búa til minningar. Ótrúlegur orkubolti strax frá upphafi,“ segir hún meðal annars.

„Þú lifðir lífinu lifandi … og stundum svolítið hratt. Afrek þín verða skráð í sögubækurnar, ég er virkilega stolt af því að vera systir þín. Ég er óendanlega sorgmædd yfir því að þú sért farinn frá okkur elsku brói minn. Ég mun fylgjast með fallegu börnunum þínum og vera til staðar fyrir þau og elsku Línu mína. Lífið verður öðruvísi án þín,“ segir hún.

Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands og góður vinur Johns Snorra, minnist hans einnig með hlýhug. John Snorri starfaði á vettvangi Ferðafélagsins.

„Þegar John Snorri kleif K2 í júlímánuði 2017 varð hann einn af innan við 300 manns í heiminum sem höfðu sigrað þetta annað hæsta og annað hættulegasta fjall heims. Fyrr á árinu hafði hann þá gengið á Lhotse, fjórða hæsta fjall í heimi, og aðeins nokkrum dögum eftir að hann gekk á K2 kleif hann einnig Broad Peak, tólfta hæsta fjall heims, sem stendur andspænis K2 í Karakorum-dalnum. Þannig hafði hann á stuttum tíma klifið þrjú af hæstu fjöllum í heimi og þótt hann hefði ekki haft hátt um þau áform sín þá stefndi hann á að klífa alla fjórtán 8.000 metra tindana,“ segir Páll og bætir við að John Snorri hafi verið magnaður fjallamaður.

„Náttúrubarn með mikla aðlögunarhæfni, sterkur, fimur og viljasterkur. Lína Móey var gift fjallgöngumanni sem vildi takast á við mestu áskoranir sem hægt er að takast á við í fjallamennsku. Hún gaf honum frelsi til þess og veitti honum allan stuðning sem hún gat. Saman voru þau að sigra hæstu tinda heims og fjölskyldan stóð á bak við hann í öllum hans leiðöngrum,“ segir hann og bætir við að minning um sannkallaðan afreksmann, einstakan fjölskylduföður, mannvin og góða manneskju verði varðveitt í hjörtum þeirra sem stóðu John Snorra næst.