Útför Grétars Felix Felixsonar, föður Guðmundar Felix Grétarssonar, hefur verið frestað vegna veðurofsans.
Guðmundur Felix greinir frá þessu á Facebook og bað sérstaklega um að þessum skilaboðum yrði dreift sem víðast, þar á meðal í fjölmiðlum.
Grétar lést þann 25. janúar síðastliðinn og átti útförin að fara fram í dag. Hefur henni verið frestað fram á föstudag.
„Kæru vinir og ættingjar. Útför föður míns sem átti að fara fram mánudaginn 7. febrúar hefur verið frestað vegna veðurs. Nýr tími verður föstudagurinn 11 febrúar kl.13.00,“ segir Guðmundur Felix.