Útför Armando Beqirai, mannsins sem var ráðinn bani í Rauðagerði þann 14. febrúar síðastliðinn, fer fram frá Grafarvogskirkju á morgun. Þetta er tilkynnt í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í dag.
„Ástkær eiginmaður og faðir, Armando Beqirai lést sunnudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram í Grafarvogskirkju föstudaginn 5. mars klukkan 15.“
Armando var fæddur árið 1988 og lætur hann eftir sig eiginkonu og eitt barn. Hann starfaði meðal annars við öryggisgæslu hér á landi og kom að rekstri fyrirtækisins Top Guard í félagi við nokkra aðra menn. Þeir önnuðust, meðal annars, dyravörslu á skemmtistöðum í Reykjavík.
Rannsókn lögreglu á morðinu stendur enn yfir en fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins og þá hafa fimm einstaklingar verið úrskurðaðir í farbann.