Úrvalsvísitalan aldrei hærri eftir hrun: markaðsverð marels nálgast 400 milljarða

Í nýjasta viðskiptaþætti Jóns G. kemur fram að Úrvalsvísitalan hefur aldrei verið hærri eftir hrun. Hún hefur hækkað um 26% frá áramótum og viðskipti undanfarnar vikur með hlutabréf hafa verið lífleg. Marel er í ævintýralegu hækkunarferli en markaðsvirði félagsins nálgast 400 milljarða króna. Þá má geta þess að markaðsvirði félaganna í Kauphöllinni eru komin yfir 1.100 milljarða króna.