Úr­sula sakar Jón um að hefja stríð gegn inn­flytj­endum - varð fyrir aðkasti og heilsað með „heil Hitler“

„Þegar ég flutti til Ís­lands fyrir rúm­lega 40 árum var þjóðin mjög eins­­leit að sjá. Það sást varla neinn ein­stak­lingur með dökka húð, svart hár og framandi klæða­burð. Ég var svo heppin að passa inn í munstrið með mína fölu húð og frekar ljóst hár. Ég kunni ekki bofs í tungu­málinu en fékk samt dvalar- og at­vinnu­leyfi, komst inn í há­skóla til að læra ís­lensku og aflaði mér seinna réttinda til að sinna leið­sögu­manns­starfi,“ skrifar Úr­súla Jünemann í Frétta­blaðinu í dag.

„ Kennara­menntun mín var viður­kennd og gat ég stundað þetta starf um leið og ég var ról­fær í ís­lenskunni. Að vísu varð ég stundum fyrir að­kasti þegar mér sem Þjóð­verja var heilsað með „heil Hitler“. En sumir hafa bara gaman af því að finna að ein­hverju.Hvar væri ég stödd í dag ef ég kæmi til landsins og vildi búa hér og starfa, væri af öðrum kyn­stofni með dökka húð eða vildi kannski hylja hár mitt vegna trúarinnar? Myndi dóms­mála­ráð­herrann senda mig úr landi?“ heldur Úr­súla á­fram.

Hún er ekki á­nægð með Jón Gunnars­son dóms­mála­ráð­herra og segir að hann hefur hafið stríð gegn inn­flytj­endum, ætlar að henda stórum hópi héðan út í ó­vissu.

„Margir þeirra hafa unnið hér og fest rætur, lært ís­lensku og engum verið til ama. Þessi maður er gamal­dags, skelfi­lega í­halds­samur og best er að losna við hann sem fyrst. Eins gott að hans ráð­herra­tíð er að ljúka, enda hefur hann gert lítið gagn heldur verið til vand­ræða, líka í sínum eigin flokki. Hann mun bráðum fara á feit eftir­laun vegna flokks­hollustu sinnar og verði honum bara að góðu.“

„Ný­leg könnun á við­horfum til inn­flytj­enda sýnir að meiri­hluti þeirra sem tók þátt er já­kvæður í þeirra garð. Það er helst eldri kyn­slóðin, 65 ára og eldri, sem er frekar nei­kvæð. En það er víst erfitt að kenna gömlum hundum að sitja. Gleði­legt er að unga kyn­slóðin er upp til hópa hlynnt því að fólk frá öðrum og líka framandi löndum setjist hér að. Þessir ein­staklingar munu opna sjón­deildar­hring okkar, auka um­burðar­lyndi og víð­sýni,“ skrifar Úr­súla.

„Furðu­legast af öllu er svo að Sam­tök at­vinnu­lífsins eru núna að kvarta há­stöfum yfir því að það vanti starfs­fólk á mjög mörgum stöðum og illa gangi að manna fyrir­tækin. Það er haft eftir fram­kvæmda­stjóranum Hall­dóri Benja­mín í Frétta­blaðinu þann 16.6. „að vaxandi mann­ekla hvíli mjög þungt á fólki í nær öllum at­vinnu­greinum“. Hvernig í ó­sköpum dettur þá dóms­mála­ráð­herra í hug að vísa fjölda fólks úr landi, fólki sem er fúst til þess að vinna hér og gera gagn?“ skrifar hún að lokum.