Úr BDSM í COVID

Karlotta Laufey verslunarstjóri segir nóg að gera hjá þeim í Rokk&Rómantík.

BDSM-grímur sem goth-verslunin seldi í fyrra slógu rækilega í gegn þegar Hatari tók þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands.

Nú eru annars konar grímur sem seljast eins og heitar lummur. Margnota andlitsgrímur fyrir almenning á tímum COVID-19.

„Það var brjálað að gera hjá okkur þegar fyrst var fjallað um grímuskyldu í strætó,“ segir Karlotta. Hún segir saumakonu Rokk&Rómantík hafa unnið nánast dag og nótt við að sauma nýjar grímur.

Aðspurð hverjir séu helst að kaupa grímurnar þeirra segir Karlotta viðskiptavinina vera á öllum aldri.

Fyrir utan hefðbundnar andlitsgrímur eru gömlu og góðu plágugrímurnar að sjálfsögðu enn til sölu ásamt öðrum skemmtilegum fylgihlutum fyrir gothara. Keðjugrímurnar gera þó lítið til að verjast gegn kórónaveirunni.

Karlotta kemur fram í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld.