Mikið uppnám er á meðal fjölda ríkisstarfsmanna, ekki síst ungs fólks, vegna nýrrar ákvörðunar Fjársýslu ríkisins við útgreiðslu launa. Þetta kemur fram ífrétt Fréttablaðsins.
„Fjársýsla ríkisins hefur nú óvænt beitt þeirri heimild sinni að greiða laun á fyrsta virka degi nýs mánaðar, sem þýðir að launamenn hjá ríkinu fari launalausir inn í verslunarmannahelgina, og fá ekki útborgað fyrr en á þriðjudag. Þetta mun koma illa við marga sem ætla sér út á land, þessa stærstu ferðahelgi ársins,“ segir í frétt Fréttablaðsins.
Fjársýsla ríkisins hefur vissulega heimild til að beita þessu ákvæði, en hefur ekki beitt henni nema einu sinni áður, en það var í maí í vor og héldu þá margir að um mistök væri að ræða.
„Að gefnu tilefni minnum við á að laun skulu greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar skv. 10.gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Þar sem 1. ágúst ber upp á frídag verslunarmanna er útborgunardagur launa þriðjudaginn 2. ágúst n.k.“ segir í tilkynningu frá fjársýslunni sem birtist í gær.
Gríðarleg óánægja á meðal ríkisstarfsmanna um þessa ákvörðun og er sagt að hún hafi eyðilagt helgina fyrir fjölda fólks.