Mikil umræða hefur skapast innan hópsins Júróvisjón 2023 á Facebook, þar sem rætt er um atburði sem áttu sér stað á Barcelona Eurovision Party á Spáni um liðna helgi. Viðburðurinn er haldinn árlega í aðdraganda Eurovision keppninnar í maí og er ætlaður að gefa þeim listamönnum sem keppa í keppninni í ár tækifæri til að kynna bæði sig og framlög sín til keppninnar í ár fyrir æstum Júróaðdáendum. Diljá var meðal þeirra sem kom fram í Barcelona.
Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Stefán Sigfinnsson deilir þar færslu frá Peter nokkrum Spriet, sem mætti á viðburðinn. Að sögn Spriet varð hann vitni að nokkru sem setji smánarblett á Eurovision keppnina.
„Við erum mjög hneyksluð og döpur yfir hegðun sumra „aðdáenda.“ Nokkrir flytjendur fengu illgjarnar athugasemdir þegar þeir voru á sviði og það var hrópað og kallað að þeim,“ skrifar Spriet.
Til að mynda hafi æstir aðdáendur hrópað og kallað ókvæðisorðum til listamannanna sem keppa fyrir hönd San Marínó og Belgíu. Aðdáendurnir hafi augljóslega verið óánægðir með val á framlagi landanna tveggja og haldið með þeim framlögum sem lentu í öðru sæti. Þá hafi verið hrópað „þið komist aldrei í úrslitin“ þegar hljómsveitin Wild Youth, sem keppir fyrir hönd Írlands í ár, steig á svið.
Spriet segir slíka hegðun aldrei viðeigandi á viðburðum á borð við Barcelona Eurovision Party. Það eigi að vera skemmtilegur viðburður þar sem listamenn fái spreyta sig á sviði fyrir framan Júróaðdáendur og tengjast öðrum keppendum.
„Við biðjum því alla hér sem lesa þetta, vinsamlegast gerið þetta aldrei þegar þið eruð að mæta í fyrirpartý. Það er algjörlega hræðilegt að móðga listamenn sem leggja hjarta og sál í flutninginn, bara af því þér líkar ekki lagið eða sá sem þú hélst hvað mest með vann ekki í undankeppninni,“ skrifar Spriet.
Stefán telur þetta dæmi um hversu mikið samfélagsmiðlar séu að eyðileggja fyrir Eurovision. Það sé döpur þróun.
Margir taka undir þetta og segjast hafa séð dæmi um mjög óvægna umræðu á samfélagsmiðlum í garð flytjenda.
„Í öðrum hópum sem ég er meðlimur í eru allir að rífa Pólland í sig og söngkonuna. Langt síðan þetta var orðið að einelti, og á sama tíma að hype-a Svíþjóð og allir aðrir væru lúserar,“ segir í einni athugasemdinni.
„Þó svo að ég telji að Loreen muni vinna stórt þá þýðir það ekki að ég ætli mér að rífa aðra niður. Það þarf alls ekki að fara saman. Hef tekið eftir því að belgíski keppandinn Gustaph hefur verið rifinn niður mjög mikið og hann hefur sagt í viðtali að hann hafi þurft að vinna verulega í því að takast á við það,“ segir annar, og bætir við:
„Hvað í ósköpunum er hægt að gera við þessa samfélagsmiðla? Með sama áframhaldi munu þeir ganga að þessari keppni dauðri.“