„Við erum algjörlega miður okkar að allt það frábæra starfsfólk sem starfar hjá SHS, vinnustaðurinn og okkar störf hafi verið dreginn inn í mál af þessu tagi.“ segir í tilkynningu Slökkviðliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Þar kemur fram að nú sé komið í ljós að það sé starfsmaður slökkviliðsins sem ber ábyrgð á klámmyndbandi sem var tekið í sjúkrabíl. Umrætt myndband hefur verið til mikillar umfjöllunar í vikunni.
Þessi starfsmaður mun ekki starfa lengur hjá slökkviðliðinu.
„Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) fékk nafnlausa ábendingu um að kynlífsmyndband hafi verið tekið upp í sjúkrabíl á vegum liðsins. Ábendingin var tekin alvarlega og farið í að rannsaka málið innanhúss. Við fyrstu skoðun var ekki hægt að staðfesta málið með þeim gögnum sem þá lágu fyrir. Eftir að málið fór í fjölmiðla í gær komu fleiri ábendingar sem hægt var að fylgja eftir.
Í kjölfar nánari rannsókna kom því miður í ljós að starfsmaður hjá SHS bar ábyrgð á þessu myndskeiði. Málinu er formlega lokið gagnvart honum og starfar hann ekki lengur hjá SHS.“