Björn Jóhannsson landslagsarkitekt hjá Urban Beat verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Fasteignir og Heimili í kvöld:
Upplifanir, vellíðan og afþreying í draumagarðinum
Með hækkandi sól og sumri langar öllum að ferðast og njóta upplifana. Væntanlega verður lítið um ferðalög erlendis á næstunni og ferðavenjur landans munu sennilega breytast eftir þessa skrýtnu og fordæmalausu tíma sem við búum við í dag. Þá er lag að eiga skemmtilegan garð eða reit utan dyra sem býður uppá fjölbreytni og annars konar ferðalög. Sjöfn ætlar að skoða þá möguleika og fær til sín Björn Jóhannsson landslagsarkitekt hjá Urban Beat til skoða þá frekar. En á síðasta ári þegar Björn kom í þáttinn talaði hann um að ferðavenjur fólks væru að breytast í Svíþjóð og fólk væri að ferðast meira utanhús, heima í garðinum sínum. Í dag er þetta að verða raunin hér á landi líka, fólki langar að auka afþreyinguna í garðinum, á reitnum sínum og jafnvel á svölunum hjá sér. „Það eru mörg tækifæri til að gera garðinn að sumarleyfisstað og búa til afþreyingu fyrir alla fjölskylduna,“ segir Björn. Einnig kemur Björn inn á það að margir séu farnir að íhuga að gera garðinn að sælustað fjölskyldunnar. Missið ekki af skemmtilegum og flottum hugmyndum fyrir garðinn, meira um þetta í þættinum í kvöld.