Skáldin lesa er heiti nýrrar þáttaraðar sem hefst á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld klukkan 21:30 – á degi íslenskrar tungu – en þar munu hátt í 20 ljóðskáld hefja upp raust sína og lesa upp úr nýútkomnum ljóðabókum.
Þáttaröðin er viðleitni Hringbrautar til að koma til móts við skáldin í landinu, sem ólíkt fyrri tímum, eiga þess ekki kost að efna til upplestra á opinberum vettvangi og miðla þannig kveðskap sínum í fjölmenni.
Þættirnir verða sannkölluð ljóðaveisla þar sem hvert skáld les, með sínu lagi, upp fjögur ljóð í sjónvarpssal – og ætti upplesturinn að gefa góða vísbendingu um yrkisefni nútímaskálda á Íslandi. Mikill kraftur er í ljóðabókaútgáfu á Íslandi, ekki síst á meðal kvenna – og bera þættirnir þess augljós merki.
Skáldin sem munu skreyta næstu mánudagskvöld á Hringbraut eru Anton Helgi Jónsson, Ásdís Óladóttir, Brynjólfur Þorsteinsson, Dagur Hjartarson, Elín Gunnlaugsdóttir, Eyrún Ósk Jónsdóttir, Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Hallgrímur Helgason, Kristín Svava Tómasdóttir, Ragnheiður Lárusdóttir, Rebekka Sif Stefánsdóttir, Sigrún Björnsdóttir, Stefanía Pálsdóttir, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, Valdimar Tómasson og Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir.