Uppboðshundurinn er margverðlaunaður: Búið að eyða „óhemju miklu“ í hann

Enski setter-hundurinn sem verður sleginn hæstbjóðanda á uppboði hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í næstu viku er margverðlaunaður.

Hringbraut greindi frá þessu óvenjulega máli í morgun, en uppboðið fer fram næstkomandi þriðjudag í húsakynnum sýslumanns í Hlíðasmára í Kópavogi.

Hundurinn sem um ræðir, Rjúpnabrekku Blakkur, er margverðlaunaður að sögn Guðmundar Arnars Ragnarssonar hjá Hafrafells-ræktun sem ræktar enska setter hunda. Hann segir í samtali við DV að hann viti ekki hvers vegna hundurinn er orðinn að bitbeini í slitum á sameign en hann kannist þó við umræddan hund sem er margverðlaunaður.

Enskir setter-hvolpar kosta um 300 þúsund krónur en hundurinn sem verður boðinn upp er fæddur árið 2016 og því á fimmta aldursári. Hann hefur hlotið mikla þjálfun og auk þess með mikinn árangur á bakinu. Guðmundur segist því ekki vita hversu háa upphæð hann gæti selst á.

„Hann er fæddur 2016, fimm ára gamall og er fullþjálfaður. Þannig að það er ómögulegt að segja hvað svona hundur myndi fara á, sem er fullþjálfaður og með allan þennan árangur á bakinu. Þessi hundur hefur áorkað miklu, bæði á sýningum og á veiðiprófum, og er með langan lista af titlum í gegnum árin.“

Auglýsingin vakti talsverða athygli í spjallhópum hundavina á Facebook og virðast margir hverjir ósáttir við að hægt sé að selja gæludýr á uppboði eins og hvern annan hlut.

„Eitt er að missa allar dauðar eignir en að selja fjölskyldumeðlim til hæstbjóðanda finnst mér rangt,“ segir í einni athugasemd á Hundaspjallinu þar sem fjörugar umræður fóru fram.