Uppáhalds „fimmaurabrandari“ oddvita Flokks fólksins vekur reiði

Eyjólfur Ármannsson, oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, sætir nú harðri gagnrýni á samfélagsmiðlum en tilefnið er viðtal við hann á Vísi þar sem hann svarar hinum ýmsu spurningum um sig og sitt líf.

Meðal spurninga er hver uppáhalds fimmaurabrandari hans sé og er óhætt að segja að kynþáttafordóma sé að finna í „brandaranum.“ Lenya Rún Taha Karim, sem er á lista Pírata í Reykjavík norður fyrir komandi kosningar, er meðal þeirra sem gagnrýnir oddvitann og svar hans.

„Ég VAR að skrifa grein um að taka samtalið um hvernig það er búið að normalísera það að koma illa fram við útlendinga á Íslandi svo kemur oddviti flokk fólksins í NVkjördæmi og KÚKAR á allt sem ég sagði með þessum brandara JESUS hvað sumt fólk þarf á fræðslu að halda,“ segir hún.

Fjölmargir hafa tekið undir með Lenyu og segja að um útlendingahatur sé að ræða og að ummælin séu greinilega hatursorðræða.

„Það er engan veginn í lagi að þau þurfi að líða svona orðræðu frá frambjóðanda til Alþingis. Þetta er fyrir neðan allar hellur,“ skrifar til að mynda Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir lögfræðingur.

„Neinei, við erum ekki útlendingahatarar en hérna er brandari um að drepa Pólverja,“ segir Óli Gneisti Sóleyjarson, bókasafns- og upplýsingafræðingur, einnig.

Viðtalið við Eyjólf má finna hér en athygli vekur að textinn um fimmaurabrandarann er nú horfin úr fréttinni.