Unu brugðið eftir samtal tveggja 12 ára drengja í Vesturbæjarlaug

Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands og fyrrverandi fjölmiðlakona, virðist hafa nokkrar áhyggjur af stöðu íslenskunnar. Dagur íslenskrar tungu er í dag og er markmið dagsins að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð.

Una var stödd í Vesturbæjarlaug í gærkvöldi þegar hún heyrði samtal tveggja drengja. Una segir frá þessu á Twitter en drengirnir voru á að giska 12 ára gamlir. Una endurskrifaði samtalið þeirra eftir minni og var það nokkurn veginn svona:

-Hann literally lookar eins og Potato.
-Er hann með moustache?
-Nei hann er ekki með moustache en hann er basically eins og þú myndir reversa hvernig höfuðið á þér er shapeað.

Una endar færsluna sína á þessum orðum: „Gleðilegan dag íslenskrar tungu…“

Í þeim stafræna heimi sem við lifum í um þessar mundir er óumflýjanlegt að börn og ungmenni komist í tæri við enskuna – jafnvel meira en góðu hófi gegnir. Það er hins vegar mikilvægt að minna landsmenn á mikilvægi tungumálsins eins og gert er í dag, á degi íslenskrar tungu.