Unnur var fyrst á vett­vang bana­slyss: „Hafði mjög slæm á­hrif á mig“

Leik- og söng­konan Unnur Eggerts­dóttir er í á­huga­verðu við­tali í nýjasta þætti Einka­lífsins á Vísi. Þar varpar Unnur meðal annars ljósi á nokkuð mörg á­föll sem hún hefur upp­lifað á undan­förnum árum.

Fyrir þremur árum var hún á leið frá Las Vegas til Los Angeles, þar sem hún er bú­sett, með vin­konu sinni þegar al­var­legt um­ferðar­slys varð fyrir framan þær. Stór bíll hafði þá snúist á veginum og endað á hvolfi.

„Við vorum þær fyrstu á vett­vang og hlaupa að fólkinu sem var inni í bílnum. Ég næ ein­hvern veginn að troða hausnum á mér inn um gluggann til að sjá þau,“ segir Unnur í við­talinu en konan sem var að keyra bílinn var svo al­var­lega slösuð að Unnur gat séð í henni heilann.

Maðurinn hennar var einnig al­var­lega slasaður og missti reglu­lega með­vitund.

„Maðurinn bað mig um að hringja í börnin sín til að segja þeim hvað hafði gerst. Þarna er vegurinn alveg stíflaður og það tók slökkvi­liðs­bílana og sjúkra­bílana mjög langan tíma til að komast þangað. Ég sat með þessum manni í hálf­tíma eða klukku­tíma á meðan konan er ein­hvern veginn að blæða út yfir hann,“ segir Unnur meðal annars.

„Að sjá mann­eskju svona of­boðs­lega slasaða og upp­lifa það með manni sem er að eiga versta dag lífs hans hafði mjög slæm á­hrif á mig.“

Konan lést í slysinu og hefur Unnur verið í sam­skiptum við fjöl­skyldu hennar eftir slysið. Þannig var henni boðið að mæta í jarðar­förina hennar.

Unnur nefnir fleiri á­föll í við­talinu, til dæmis flug­slys sem hún lenti í árið 2009 og þegar bif­reið var ekið á kærastann hennar árið 2019.

Hér má sjá viðtalið við Unni í heild sinni.