Unnur opinberar tekjur sínar: Þetta eru krónurnar sem hún fær á mánuði – Bjóst ekki við að lenda í þessu

„Ég opinbera hér tekjur mínar, lesendum til glöggvunar á stöðu öryrkja, sem margir hafa það þó miklu, miklu verra. Ég lít á lífeyrinn sem opinber gögn,“ segir Unnur H. Jóhannsdóttir, kennari, blaðamaður og öryrki, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Í grein sinni varpar Unnur ljósi á stöðu sína sem 75% öryrki í íslensku samfélagi. Hún fær 231.825 krónur á mánuði eftir skatt.

„Já, ég greiði skatta. Ég samsama mig láglaunafólki, valdlausu fólki, minnihlutahópum í öllum samfélögum,“ segir Unnur sem bætir við að ólíkt verkafólki hafi öryrkjar engan samningsrétt.

„Það gilda engir samningar á milli öryrkja og ríkisvaldsins. Ríkið skammtar, og skammtar mjög naumt, og allir vita það en enginn gerir neitt. Samt er eineltið liðið. Örorkulífeyrisþegar eru málaðir út i fátæka hornið og allir vita það. Samt er það liðið og enginn gerir neitt. Húsnæðiskostnaður er að sliga fjölmarga öryrkja en enginn gerir neitt. Eineltið er liðið sem og valdníðsla markaðarins.“

Unnur kveðst viðurkenna að þegar hún var á vinnumarkaði og svingaði í takt við samfélagið hafi hún lítið að hugsa um upphæðir örorkulífeyris.

„Ég verð að viðurkenna að ég leiddi hugann ekki mikið að fátækt í samfélaginu. Og ég verð að viðurkenna að ég bjóst aldrei við að lenda í þeirri stöðu að þurfa að lifa af örorkulífeyri. En hér er ég og get ekki annað en mótmælt. Ég mótmæli! Ekki bara fyrir mína hönd heldur allra annarra öryrkja, fatlaðs fólks, sem margt hefur það miklu, miklu verra en ég.“

Unnur bendir á að öryrkjar hafi í áranna rás reynt , oftar en í krafti Öryrkjabandalags Íslands, að ná athygli stjórnvalda.

„Dropinn hefur holað steininn en enn er vegferðin til velferðar fyrir þennan minnihlutahóp í samfélaginu löng. Kröfum öryrkja er ekki mætt. Svör stjórnvalda eru ætíð þau sömu: ríkið hefur ekki efni á að hækka lífeyrinn. Nú geisar hræðilegt stríð í Evrópu og þá er rétt að minna á að útgjöld til hermála eru lítil á Íslandi, þar sem við erum herlaus þjóð. Þeir peningar sem hugsanlega hefðu farið til hermála gætu því runnið til öryrkja. Bara hugmynd!“

Unnur segist fá nokkrar krónur til viðbótar inn á reikninginn sinn um hver mánaðamót, bæði lífeyristekjur og svo vinnulaun.

„Hér ætla ég ekki að útmála skerðingarnar, enda eru það vísindi út af fyrir sig og frekar leiðinleg. Í mínum huga er eðlilegt að skerða lífeyri ef aðrar tekjur fara upp fyrir ákveðið mark en vandinn liggur í því að skerðingarmörkin eru allt of lág og í almannatryggingakerfinu er ekki að finna neinn hvata til að vera á vinnumarkaði. En nóg um það. Ég ætlaði að opinbera allar tekjur mínar og geri það hér með. Ástæðan er einfaldlega sú að þetta er veruleiki meirihluta öryrkja og lítil ástæða til að fara leynt með það líkt og allt leynimakkið sem þrífst á vinnumarkaðnum. Það fá fleiri þúsundir fatlaðs fólk lífeyrisseðill svipaðan mínum um hver mánaðamót,“ segir Unnur sem birtir töflur sem sýna tekjur hennar í hverjum mánuði eftir skatta.

„Þetta er minn veruleiki. En ekki bara minn, þetta er veruleiki þúsunda annarra öryrkja. Það sem er sárast er að ég kem til með að búa við þessi kjör það sem eftir er, því engar hafa lífeyrishækkanir verið hingað til. Breytum þessu og berjumst fyrir betri kjörum fatlaðs fólks.“