Unnur og Stefán koma Gísla Marteini til varnar: „Vá hvað þetta er vandræðalegt og biturt“

Týr, nafnlaus höfundur Viðskiptablaðsins, sem er á ábyrgð Trausta Hafliðasonar ritstjóra, setur stórt spurningamerki við að það þurfi „sex manna teymi ríkisstarfsmanna“ til að skrifa brandara Gísla Marteins Baldurssonar í vikulegum skemmtiþætti.

„Týr tók eftir því að Gísli Marteinn Baldursson, skemmtikraftur á Ríkissjónvarpinu, sá nýlega ástæðu til að hrósa sérstaklega handritshöfundum að bröndurum sínum í vikulegum spjallþætti sínum. Eins og Týr hefur áður fjallað um er hluti þáttarins, sem sýndur er á einum besta útsendingartíma í línulegri dagskrá, iðulega nýttur til að skjóta á þá sem skilgreina sig til hægri í stjórnmálum,“ segir í pistlinum.

„Bergsteinn Sigurðsson, annar starfsmaður RÚV, er aðalhöfundur og nýtur aðstoðar Gísla Marteins og fjögurra annarra starfsmanna RÚV. Allir vita að það þarf auðvitað sex manna teymi ríkisstarfsmanna til að skrifa þriggja mínútna brandaraseríu í hverri viku, sem yfirleitt vekur mikla lukku… á twitter.“

Leikkonan og VG-liðinn Unnur Eggertsdóttir kemur honum til varnar, á einmitt Twitter, þar sem hún deilir skrifum Týs og segir:

Grínistinn Stefán Vigfússon tekur undir með henni og kemur Gísla Marteini til varnar: „Heldur þessi pistlahöfundur virkilega að það séu sex manns í fullu starfi við að skrifa þetta? Annaðhvort er þetta óheiðarleg framsetning eða vandræðaleg vitleysa,“ segir Stefán.

„Við þetta má bæta að það er ofsalega vandræðalegt að skrifa: „Allir vita að það þarf auðvitað…“ Það grefur undan áherslunni, það er eins og 11 ára gamalt barn hafi skrifað það daginn sem það bar fyrst kennsl á kaldhæðni. En auðvitað skrifar Týr alltaf eins og 11 ára gamalt barn.“