Unnur nokkur, íbúi í Kópavogi greinir frá leiðinlegu atviki sem átti sér stað í Kópavogi í gær. Hún segist skyndilega hafa heyrt hávaða úr garði nágranna síns. Fyrst virðist hún ekki hafa áttað sig á því hvað væri á seiði, en svo sá hún hver væri að verki.
„Allt í einu varð allt vitlaust í garði nágrannans! Fuglarnir „æptu“! Veit ekki hvaða fuglar þetta voru, kannski svartþröstur, kannski skógarþröstur, kannski minni fuglar, átta til tíu stykki. Hvað var eiginlega í gangi? Æ, sennilega hrafn í trénu. Nei. Ég sé svarta rófu, lengst uppi í tré! Hélt ekki að kettir kæmust svona langt upp í tré! Jú. Eftir góða stund lallar hann sér í rólegheitunum niður aftur og úr garðinum. Og fuglarnir grétu,“
Þetta skrifar Unnur í Facebook-hóp fyrir íbúa í Digranesi. Hún bætir síðan við í lok færslu sinnar að sér þyki vænt um ketti, en þrátt fyrir það veltir hún fyrir sér hvers vegna þeir séu ekki í eftirliti eins og hundar til dæmis.
„Þetta gerðist í gærdag. Mér þykir alveg vænt um ketti. En ættu þeir kannski að vera undir eftirliti eigendanna eins og hundarnir? Maður spyr sig.“