Ungur piltur framdi ýmis ofbeldisbrot: „Eða ég mun fokking ríða þér í fokking rassgatið“

Táningspiltur hlaut tíu mánaða skilorðsbundin dóm á dögunum í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hin ýmsu brot.

Hann var til að mynda dæmdur fyrir að ráðast að jafnaldra sínum í Mosfellsbæ árið 2020, þegar hann var einungis sextán ára.

Það gerði hann með í­trekuðum hnefa­höggum í höfuð svo hinn féll við, og síðan með því að halda at­lögu sinni á­fram, stappað á höfði hans og hálsi og slegið hann í­trekuðum hnefa­höggum í and­lit þar sem hann lá.

Einnig hlaut hann dóm fyrir að kasta glerflösku í öryggisvörð við Hagkaup í Spönginni. Það gerðist eftir að piltinum var vísað úr versluninni því hann bar ekki grímu. Atvikið átti sér stað þegar grímuskylda var við lýði.

Þar að auki var hann dæmdur fyrir að láta eftirfarandu ummæli falla í garð lögregluþjóna:

  1. „Oh. þú ert svo sæt í andlitinu ég mun fokking nauðga andlitinu þín“
  2. „Ógeðslega fokking mellan þín ég mun fokking nauðga þér í fokking rassgatið“
  3. „Haltu fokking kjafti eða ég mun fokking ríða þér í fokking rassgatið“

Hægt er að lesa nánar um þetta mál á vef Fréttablaðsins.