Ungu hjónin héldu að þau væru bara með þrjá rétta en það reyndist kol­rangt

Ung hjón með eitt barn og annað í leiðinni duttu svo sannar­lega í lukku­pottinn þegar Lottómiðinn þeirra reyndist luma á ó­skiptum tvö­földum fyrsta vinningi.

Þetta kemur fram í skemmti­legri til­kynningu frá Ís­lenskri get­spá.

„Konan sem hafði ein­hvern tímann heyrt að á­gætt væri að kaupa Lottómiða fjarri heima­högum á­kvað að taka einn sjálf­valsmiða í Olís Langa­tanga þegar hún átti leið gegnum Mos­fells­bæ,” segir í til­kynningunni.

Þegar hún lét svo fara yfir miðann eftir út­drátt fékk hún á­bendingu um að koma sem fyrst á skrif­stofu Ís­lenskrar get­spár í Laugar­dal. Þetta þótti henni ó­þarfa um­stang fyrir ó­létta konu enda hafði hún rekið augun í það að seðlinum var ein röð með 3 rétta og slíkir vinningar eru alltaf greiddir út beint.

Maðurinn hennar prófaði hins vegar að skanna miðann inn í nýju út­gáfu Lottóappsins og kom þá í ljós að auk þess að vera með þrjá rétta var önnur röð á seðlinum með allar fimm tölurnar réttar. Það varð því mikil gleði þegar unga fjöl­skyldan kom í Laugar­dalinn daginn eftir og ljóst að skanninn í Lottóappinu hafði sannað gildi sitt.

Þess má til gamans geta að ör­fáum dögum síðar kom annar stór vinningur á miða sem einnig var keyptur í Olís Langa­tanga, en í það skiptið var það í Vikinglotto.

Í til­kynningu óskar Ís­lensk get­spá ungu fjöl­skyldunni inni­lega til hamingju með stóra vinninginn.