Unga fólkið til fyrirmyndar: Bökuðu fyrir kaffistofu Samhjálpar – „Þau voru svo glöð“

Nemendur í Suðurhlíðaskóla í Reykjavík eiga mikinn heiður skilinn en þau hafa að undanförnu bakað brauð og kökur sem þau færa kaffistofu Samhjálpar.

Fréttablaðið fjallar um þetta jákvæða verkefni í dag en um er að ræða samfélagslegt verkefni í skólanum sem nemendur vinna. Á hverju ári vinna nemendur þrjú óhefðbundin skólaverkefni sem beinast að því að gefa til samfélagsins.

„Á hverju ári safna krakkarnir pening sem þau gefa til góðgerðarmála og svo tökum við, líkt og margir aðrir skólar, þátt í verkefninu Jól í skókassa þar sem við sendum gjafir til barna í Úkraínu,“ segir Steinunn Hulda Theódórsdóttir, kennari í 6.-7. bekk, í Fréttablaðinu í dag.

Steinunn segir að eftir að hafa komist í samband við Samhjálp kom í ljós að suma daga er ekkert til handa fólkinu sem þangað leitar. Eins og kunnugt er veitir Kaffistofa Samhjálpar umkomulausu og fátæku fólki morgun- og hádegisverð á degi hverjum.

Krakkarnir hafa síðustu daga bakað kókoskúlur, pítsusnúða, muffins og hjónabandssælur í skólanum ásamt því að þau hafa safnað mat. „Það hafa bara allir hjálpast að, foreldrar hafa til dæmis keypt örlítið auka þegar farið er að versla og sent krakkana með í skólann,“ segir Steinunn.

Bryndís Bjarnadóttir, nemandi í skólanum, segir við Fréttablaðið að það sé gott að gefa. „Þetta var mjög góð tilfinning og þau voru svo glöð og ánægð með okkur,“ segir hún.

Fréttina má lesa hér.