Börn allt niður í átta til tíu ára voru í hópi þeirra sem björgunarsveitir komu til aðstoðar við gosstöðvarnar í Geldingadal í nótt. Tugum var komið til hjálpar á svæðinu eftir að veður fór versnandi.
Fréttablaðið greinir frá þessu.
Þar er haft eftir Guðbrandi Erni Arnarsyni, sem var í stjórnstöð Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Grindavík í nótt, að 38 manns hafi komið í fjöldahjálparstöð sem Rauði krossinn setti upp. Um 130 mannlausir bílar voru í vegkanti um miðnætti í gærkvöldi sem er til marks um þann gríðarlega fjölda fólks sem fór á svæðið. Þeim fór fækkandi þegar líða fór á nóttina en klukkan fimm í morgun voru enn þrír bílar eftir á svæðinu sem eigendur höfðu ekki vitjað.
Guðbrandur er gagnrýninn á það ábyrgðarleysi sem sumir sýndu en veður var vont á svæðinu sem er mjög erfitt yfirferðar. Hann segir að sumir hafi verið með ung börn með sér en yngstu börnin voru allt niður í 8-10 ára sem er alltof ungt.
Þetta er krefjandi og erfitt landslag og á góðum sumardegi getur þetta jafnvel verið erfitt yfirferðar,“ segir hann við Fréttablaðið. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á svæðinu vegna smávægilegra meiðsla eða gruns um ofkælingu.
Fréttina má lesa í heild sinni hér.