Breski ofurhuginn Lewis Pugh er staddur á Íslandi þessa dagana þar sem hann æfir sig fyrir eina erfiðustu þrekraun heims, að synda tæplega 10 kílómetra leið í Ilulissat-firðinum á Grænlandi.
Pugh hefur birt svipmyndir frá æfingum sínum á Íslandi á Twitter-síðu sinni en sjálfur segir hann að sjósundið sem framundan er á Grænlandi sé eitt það kaldasta í heimi.
Pugh gerir þetta til að vekja athygli á loftslagsbreytingum og hlýnun jarðar, en eins og kunnugt er bráðnar Grænlandsjökull hratt þessi misserin samhliða hlýnandi loftslagi.
Pugh ætlar að byrja sundið þann 25. ágúst næstkomandi en til að vera sem best undirbúinn hefur hann synt í sjónum við Ísland og vötnum landsins.
Í viðtali við BBC segir hann að þetta verði hans mesta þrekraun til þessa, enda sjórinn vægast sagt kaldur á þessum slóðum. Sundið í beinni línu er 10 kílómetrar en verður líkast til nokkuð lengra þar sem hann þarf að sveigja fram hjá ísjökum í firðinum.
Pugh hefur áhyggjur af hlýnun jarðar og bendir á að jarðarbúar þurfi á jöklum heimsins að halda. „Ísinn heldur hitanum í skefjum og gerir okkur í raun kleift að búa hér. Heimskautasvæðin eru að bráðna og samhliða því er búseta okkar á jörðinni sett í ákveðna hættu.“
Mynd: Vefsíða Lewis, Lewis Pugh Foundation.
This week's cold water adaptation has been some of the toughest swimming of my life. Once you’ve experienced extreme cold, you never quite thaw out. You remember it in your bones. #ClimateSwim pic.twitter.com/BJwHi9DiHg
— Lewis Pugh (@LewisPugh) August 17, 2021