Una svarar fyrir sig: Nafnið hennar skrifað kolrangt

Una Hildardóttir, forseti Landssambands ungmennafélaga og varaþingmaður Vinstri grænna, skýtur á fjölmiðlamanninn Sigurjón M. Egilsson á Twitter-síðu sinni.

Tilefnið er frétt sem Sigurjón skrifaði á vef sinn, Miðjuna, í gær þess efnis að Una sækist eftir öðru sætinu í forvali Vinstri grænna í suðvesturkjördæmi. Í frétt Miðjunnar var það hins vegar gert að aðalatriði að Una er tengdadóttir Steingríms J. Sigfússonar, fráfarandi þingmanns VG og fyrrverandi ráðherra. Fyrirsögnin er nefnilega: „Tengdadóttir Steingríms J. fer gegn varaformanni Vinstri grænna“

Una svarar þessum fréttaflutningi á Twitter og klórar sér í kollinum yfir því að hún sé kennd við tengdaföður sinn. Hún segir:

„Góðan dag, er þetta Miðjan? já hæ, vildi bara benda á að SME skrifaði Hildardóttir vitlaust í frétt um framboðstilkynninguna mína.”