Una Sighvatsdóttir, forsetaritari, sá heldur betur merki um að heimurinn sé að jafna sig eftir Covid á Leifsstöð í gær.
Hún greinir frá málinu í Twitter færslu sem vakið hefur mikla athygli. „Í komusalnum í Leifsstöð var hópur ungra dudebros með fulla innkaupakerru af bjór og gríngleraugu með typpanefi,“ skrifar Una.
„Dirty weekend steggjapartýferðir til Íslands greinilega komnar aftur eftir covid. Nature is healing.“
Þá er hún spurð hvort þarna hafi ekki verið á ferðinni Englendingar. „Nokkuð viss um að þetta hafi verið tjallar, já, en ég hætti mér ekki nógu nærri til að sannreyna það.“
Í komusalnum í Leifsstöð var hópur ungra dudebros með fulla innkaupakerru af bjór og gríngleraugu með typpanefi. Dirty weekend steggjapartýferðir til Íslands greinilega komnar aftur eftir covid. Nature is healing.
— Una Sighvatsdóttir (@unasighvats) March 10, 2022