Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands og fyrrverandi fjölmiðlakona, segir mikilvægt að dæma ekki rússneska alþýðu á ákvörðunum eins manns.
Rússland hefur verið í brennidepli síðustu daga vegna innrásarinnar í Úkraínu en forseti landsins, Vladimír Pútín, hefur sætt gríðarlegri gagnrýni vegna ákvörðunar sinnar.
Una leigði herbergi á heimili rússneskra hjóna í hinni fallegu Pétursborg fyrir um áratug og segist hún hafa notið þar einstakrar gestrisni og heillast af fegurð borgarinnar og björtum vornóttum.
„Sjö mánuðum síðar fékk ég frá konunni jólakort sem var svo fallega einlægt að ég geymdi það og rifja það upp núna,“ segir Una og bætir svo við:
„Til minnis um að aldrei skyldi dæma almenning eftir gjörðum einræðisherra: "I wish you the next year traveling and bright impressions! So that you are always met the kindest people! Cheers! And be happy! Thank you for being with us and shared part of his world. Happy new year!"“
Margir taka undir þetta hjá Unu og segjast hafa ekkert nema gott að segja um rússneska alþýðu.
„Elska Rússland og Rússa. Hefur alltaf langað til þess að koma þangað aftur og skoða meira af þessu magnaða landi. Þau eru ekki Pútín frekar en ég er Bjarni Ben,“ segir í einni athugasemd.
Fyrir 10 árum leigði ég herbergi inni á heimili rússneskra hjóna í Pétursborg. Naut þar einstakrar gestrisni og heillaðist af fegurð borgarinnar á björtum vornóttum. Sjö mánuðum síðar fékk ég frá konunni jólakort sem var svo fallega einlægt að ég geymdi það og rifja það upp núna
— Una Sighvatsdóttir (@unasighvats) February 27, 2022