Una gerði merki­lega upp­götvun í Góða hirðinum – Svona gerist lík­lega bara á Ís­landi

Tón­listar­konan Una Stefáns­dóttir gerði býsna skemmti­lega upp­götvun í Góða hirðinum á dögunum þegar hún fann þar bók merkta einum þekktasta Ís­lendingnum um þessar mundir.

„Nei sko, ég get keypt bók sem helsta celeb landsins átti einu sinni. Á nytja­markaði. Á netinu. Merkta honum, með síma­númeri. Á 500 kall. Bara á Ís­landi,“ segir Una á Twitter og birtir mynd máli sínu til stuðnings.

Eins og sést er bókin, Tinna­bókin Leyndar­dómur Ein­hyrningsins, merkt Ólafi Darra Ólafs­syni í Steina­seli í Selja­hverfinu. Ólafur Darri átti vissu­lega heima í Selja­hverfi á sínum yngri árum og gekk hann í Öldu­sels­skóla. Þetta kemur því allt heim og saman og allar líkur á að Hollywood-leikarinn Ólafur Darri hafi átt um­rædda bók.

Alls ó­víst er hvort bókin sé enn til en á Twitter hefur Ólafur Darri verið merktur og hann hvattur til að ná í ein­takið aftur.