Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í lyf- og gigtarlækningum og umsjónarlæknir COVID göngudeildar Landspítalans, segir að færa megi sterk rök fyrir því að fjórða bylgjan sé hafin.
„Það ætti ekki að koma okkur á óvart,“ segir Ragnar Freyr sem hvetur landsmenn til dáða. „Hvet alla með einkenni að bóka tíma í skimun. Munum hversu vel hefur gengið - og að við reddum þessum saman!“
Eins og komið hefur fram greindust sautján innanlandssmit í gær og óttast margir að fjórða bylgjan sé að hefjast. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir raunar að fjórða bylgjan sé komin í öllu sínu valdi. Hefur Kári kallað eftir því að öllu verði skellt í lás á nýjan leik, en búist er við því að hertar aðgerðir verði kynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar sem hefst klukkan 15 í Hörpu.