Samfélagsmiðlar á Íslandi fóru á hliðina í gær eftir að Fréttablaðiðbirti álit Umboðsmanns barna um að það þyrfti að endurskoða Píp-test í grunnskólum.
Þar kom fram að prófið, sem er ætlað að mæla þol barna, væri kvíðavaldandi og niðurlægjandi fyrir þá sem falla. Fjölmargir hafa lagt orð í belg eftir fréttina og rifjað upp sína reynslu af piptesti og hvort það eigi að hætta að mæla þol hjá börnum.
Hér má sjá aðeins brotabrot af því sem netverjar hafa verið að segja.
Ég var nörd í grunnskóla sem hataði allar íþróttir og eyddi frítímanum í að lesa, spila tölvuleiki og horfa á gamlar bíómyndir. Samt var ég ógeðslega góður í píptest og fannst það bara skemmtilegt. Ég og aðal fótbolta jockinn í bekknum kepptum um titilinn ár hvert. True story. pic.twitter.com/Hc4Uz9ixvH
— Þorvaldur Sigurbjörn Helgason 🇺🇦 (@dullurass) March 24, 2022
eeeer ENNÞÁ verið að nota píp test?! Ætli það sé ennþá sama spólan? https://t.co/0GeZZWZC1M
— Bobby Breiðholt (@Breidholt) March 24, 2022
Óvinsæl skoðun:
— Marteinn Urbancic (@MrUrbancic) March 24, 2022
Það hlakkaði í mér í grunnskóla þegar ég vissi að það væri píp-test 😅
Ég bjó 7 ár í útlöndum sem krakki, flutti heim í 9. bekk (nú 10.) margt skrýtið, eins og t.d. að taka leikfimipróf, Jane Fonda æfingar og armlyftur, fyrir framan prófdómara! Slapp þó við pip-test.
— Einar Karl Friðriksson (@EinarKF) March 25, 2022
Ég HATAÐI píptest, en svo fór ég einu sinni í píptest drykkjuleik þar sem var tekinn sopi við hvert píp (hljómar easy I know, merkilega erfitt samt, mana þig að prófa) og núna er það sú minning sem er beintengd við þetta drasl. Ég vann btw 🥳 https://t.co/Zi6OcugLbS
— vaselín (@_elinasbjarnar) March 25, 2022
Ég var alltaf ógeðslega lélegur í píptesti en ég var bissí við að láta ekki berja mig þegar ég var ekki í píptesti til að stressa mig yfir því.
— Atli Viðar (@atli_vidar) March 25, 2022
Þessi umræða um píptest er áhugaverð.
— Pétur Örn Gíslason (@peturgisla) March 25, 2022
Ég t.d. fékk svipaða tilfinningu þegar ég átti að fara í stærðfræði, en það var enginn að spá í því.
Elskaði hinsvegar íþróttir og píptest, þar gekk mér vel.
Afhverju er skólakerfið ekki bara meira sniðið að einstaklingnum?
astin min er allt í lagi? þu ert ekkert buinn að tja þig um píptest í dag
— slemmi (@selmalaraa) March 25, 2022
❤️mér leið svo svakalega illa eftir öll mín píptest❤️
— Freyr S.N.🌻 (@fs3786) March 25, 2022
því ég fékk ekki að halda áfram eftir að hafa náð level 12. Pæliði í því, það var bara slökkt á!!!! Eftir sat ég og öskurgrét inn í klefa eftir á❤️
Eitt af því sem er leiðinlegra en píptest er umræða um píptest
— Stígur Helgason (@Stigurh) March 25, 2022
Meira píptest. Þá útrymum við feita fólkinu. 🙃 https://t.co/cOOno60Bs7
— 𝚁 𝙰 𝙶 𝙶 𝙰 🦋 🇺🇦 (@raggaj89) March 25, 2022
Það er ekki kúl að public-shame krakka! Sumir myndu jafnvel segja að public-shaming sé eineltisaðferð.
— Rúnar Berg Ⓐ🄯ⒶB 🌲 (@rokksula) March 24, 2022
Ef við endilega þurfum að setja krakka í þolpróf (sem ég stórefast um) þá er píptest ekki rétta aðferðin. https://t.co/8Hcu22X5Kl
Ég er ekki mikil píptest kona en það er margt mikilvægara en píptest sem þarf að fella niður. https://t.co/B6zO4vBq0O
— Gunnhilduras (@gunnhilduras) March 25, 2022
Píptest nema þú hefur 5 sekúndur til að leysa stærðfræðidæmi eftir hvern sprett. Þyngist eftir því sem þú nærð lengra. Þannig finnum við út hver er raunverulega 12 ára alpha.
— Daði Rafnsson (@dadirafnsson) March 25, 2022
Píptest kvíðavaldandi og skal tekið út....
— Stefán Arason (@stebbi85) March 25, 2022
Hvað næst taka út verðlaun og dúxa? 😅
Má ekki setja neinar kröfur á börn í dag eða reyna smá á þau.
Þetta er farið að ganga og langt imo 🤷♂️
Einhver helvítis lestrarspjöld sátu föst í mér töluvert lengur en þetta píptest 😑https://t.co/32sXIoSMUt
— Hildur Helgadóttir (@grildur) March 25, 2022
Þú gast fengið tíur í öllum prófum, en þú varst ekki alvöru nörd í mínum augum fyrr en þú byrjaðir að try-harda píptest
— Jóhann Ólafur (@joiolafur) March 24, 2022
Þvílíka aumingjavæðingin að vilja banna píptest 🤡
— Anton Gudlaugsson (@AntonGudlaugsso) March 25, 2022
Áhugaverð umræða. Sjálfur var ég “íþróttastrákur” og píptest olli mér engu hugarangri. Myndmennt hins vegar…,
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) March 25, 2022
Stoppum við bara við líkamleg fög sem valda kvíða eða förum alla leið?