Um­mæli Einars vekja upp mikla reiði: „Ó­trú­legt að maðurinn skuli láta svona út úr sér“

For­maður borgar­ráðs, Einar Þor­steins­son, liggur undir á­mæli eftir um­mæli á Frétta­vaktinni á Hring­braut í fyrra­dag. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Einar sagði, eftir að hópur borgara hafði af­hent 4.000 undir­skriftir til að mót­mæla röskun á starfi Vinjar vegna niður­skurðar hjá borginni:

„Ég velti því upp, þetta byrjaði sem sjálf­boða­liða­verk­efni af hálfu Rauða krossins, starf­semin í húsinu er þess eðlis að það þarf ekki endi­lega fag­fólk til þess að sinna því. Ég velti fyrir mér hvort ein­hverjir af þessum 4.000 sem skrifuðu undir þetta eða Rauði krossinn eða aðrir sem vilja sinna þessum hópi með þessum hætti vilji gera það á­fram.“

Í júlí 2022 var til­kynnt á vef Reykja­víkur­borgar að borgin hefði tekið við rekstri Vinjar af Rauða krossinum eftir 29 ára sögu.

Sig­þrúður Erla Arnar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þjónustu­mið­stöðvarinnar, sagði þegar borgin tók við rekstrinum að spennandi tímar væru fram undan.

„Við ætlum að læra af því starfi sem hefur verið hér og tökum svo eitt skref í einu í átt að því að efla það enn frekar,“ sagði hún.

Rúmu ári síðar er Reykja­víkur­borg á undan­haldi og full­komin ó­vissa nú um fram­haldið, not­endum til ama.

„Mér finnst ó­trú­legt að maðurinn skuli láta svona út úr sér. Hann kastar á­byrgðinni frá sér,“ segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borgar­full­trúi Sósíal­ista. Hún telur um­mæli Einars til marks um van­þekkingu þeirra sem hafi völdin um fram­tíð Vinjar.

Margrét Ei­ríks­dóttir, geð­hjúkrunar­fræðingur sem starfar hjá Land­spítalanum, þekkir mjög vel til starfsins í Vin.

„Um­mæli Einars eru ó­heppi­leg og vís­bending um að hann áttar sig ekki á mikil­vægi fé­lags­mið­stöðvarinnar, áttar sig ekki á mikil­vægi þess að hafa þjálfað fólk til að starfa með þessum hópi,“ segir Margrét.

Hún segir Rauða krossinn hafa stofnað Vin fyrir fólk með geð­ræn veikindi af því að engin slík þjónusta var fyrir hendi. Starfs­reglur Rauða krossins séu að eiga ekki í sam­keppni við önnur úr­ræði og þess vegna sé lang­sótt að Rauði krossinn taki aftur við starfinu.

„Svo þróaðist sam­fé­lagið og Rauði krossinn steig úr úr starfinu. Það var til að eiga ekki í sam­keppni við önnur úr­ræði,“ segir Margrét.

Hún segir að það hafi þurft að hjálpa starfs­mönnum sveitar­fé­laga að skilja að gestirnir stýri í raun starfinu. Í því ljósi sé var­huga­vert að halda að sjálf­boða­liðar geti leitt starf hópsins í Vin á kostnað fag­fólks.

„Við erum að tala um þjálfun frekar en menntun,“ segir Margrét. „Það er allt annað að koma í heim­sókn á sunnu­degi í Vin þegar bara eru sjálf­boða­liðar eða virka daga þegar starfs­manna­hópurinn er á staðnum,“ segir Margrét.