Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra kveðst sannfærður um að hrein og græn náttúra ásamt sjálfbærum lausnum skipti mestu máli í viðspyrnu efnahagsmála á næstu árum. Enginn tali lengur um álver. Svarið við áskorunum framtíðarinnar sé af allt öðrum toga.
Hann er gestur Sigmundar Ernis í fréttaþættinum 21 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld þar sem rætt er um þá áleitnu spurningu hvort vestræna hagkerfið, drifið áfram af gamalkunnri gróðavon, fari aftur í sama farið eftir heimsfaraldurinn, eða hvort það muni draga lærdóm af þeirri áminningu sem náttúran virðist vera að veifa mannkyninu nú um stundir.
Guðmundur Ingi segir pólitíkina vera að breytast og hamfarir síðustu vikna muni breyta henni enn meira; umhverfisvænni ferðamáti milli landa, knúinn áfram af grænni orku sé vissulega ekki að gerast akkúrat í dag, en krafan um slíkar lausnir muni nú óma enn hærra, ásamt nærtækari lausnum, svo sem þeim að rafvæða rútur og bílaleigubíla hér heima svo Ísland geti svarað kallinu um grænna og hreinna land en nokkru sinni. Hann bætir svo við tveimur atriðum sem muni auglýsa landið enn betur; hálendisþjóðgarður muni skapa einstaklega gott umtal um heim allan og verða aðdráttarafl í sjálfu sér – og aukin innlend matvælaframleiðsla, svo sem á sviði stórátaks í grænmetisræktun, þar sem hrein orka hjálpi til í auknum og ríkari mæli en áður, verði landinu ekki síður til álitsauka úti í hinum stóra heimi.
Fréttaþátturinn byrjar klukkan 21:00 í kvöld en þar verður einnig rætt við Þóri Garðarsson, forstjóra Gray Line á Íslandi um aðgerðapakka stjórnvalda til handa ferðaþjónustunni sem kynntur var í gær og hvernig fyrirtækið mætir nú þeim einstöku aðstæðum sem við blasa.