„Um­­­ferðin getur hrein­­lega leitað frekar inn í í­búða­byggð“

Ey­þór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins í borgar­stjórn, gefur lítið fyrir á­form meiri­hlutans um að lækka há­marks­hraða á mörgum af helstu sam­göngu­æðum borgarinnar.

Sam­kvæmt ný­sam­þykktri á­ætlun borgarinnar verður há­marks­hraði á götum í eigu borgarinnar hvergi yfir fimm­tíu kíló­metrum á klukku­stund. Ey­þór var fyrir svörum í beinni útendingu hjá Stöð 2 í kvöld.

Sjá einnig: Hámarkshraði lækkar: Götur þrengdar og rúmlega 400 „30 km hlið“ sett up

„Við höfum á­hyggjur af því að þegar það er verið að lækka um­ferðar­hraða á lykila­k­reinum, eins og við Suður­lands­brautina, Bú­staða­veg, Grens­ás­veg og víðar, þá sé tvennt sem geti gerst.

Annars vegar að af­kasta­geta kerfisins minnkar og svo hitt að öryggis­þátturinn gangi ekki upp, því að um­ferðin getur hrein­lega leitað frekar inn í í­búða­byggð og ná­lægt skólum þegar fólk lendir í um­ferðar­teppu á þessum lykil­um­ferðar­svæðum,“ sagði Ey­þór.

Hann segir að for­svars­menn strætó telji einnig að þetta muni tefja al­mennings­sam­göngur. Þessa í stað segist Ey­þór vilja bæta um­ferðar­öryggi.

„Sér­stak­lega ná­lægt í­búða­byggð, bæta gang­brautir eins og snjall­brautir sem við höfum lagt til, og lagt á­herslu á að snjall­væða borgina. Við viljum lækka hraða þar sem hætta er, til dæmis ná­lægt skólum og annað, en ekki að fara í að þrengja að um­ferðinni á helstu æðunum.“