Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir umferðaræðar á Suðurnesjum og sjálfan Keflavíkurflugvöll í mögulegri hættu fari að gjósa á Reykjanesskaga á vissum stöðum. Margt bendir til að bráðlega fari að gjósa en enginn veit hvar.
Þorvaldur ræddi málið á Bítinu í Bylgjunni á morgun. „Það er möguleiki að það geti gosið þannig á Reykjanesskaganum að við missum báða vegina, Keflavíkurveg og Suðurstrandarveg. Þá erum við í stórum vandamálum. Ekki bara Reykjanesskaginn. Heldur allt landið, það yrði svo mikið efnahagstap ef það er ekki hægt að koma með ferðamenn inn.“
Þorvaldur segir að líklega ættu Íslendingar að byggja annan alþjóðaflugvöll á svæði þar sem ekki er hætta á eldgosum. Skynsemin segi sér það.
„Og verið með þá á ólíkum stöðum þannig ef einn verður fyrir áhrifum þá er hinn í góðu lagi,“ segir Þorvaldur.