Um­deilt kennslu­mynd­band Votta Jehóva á Ís­landi: „Er í al­vöru mark­visst verið að kenna litlum börnum í sam­­fé­laginu okkar þetta?“

Kennslu­mynd­band Votta Jehóva á Ís­landi hefur vakið mikla um­ræðu og hörð við­brögð frá hin­segin sam­fé­laginu þar sem mynd­bandið kennir ungum börnum að sam­kyn­hneigð sé ekki í lagi.

Í mynd­bandinu kemur ung stelpa heim og greinir mömmu sínu frá því að bekkjar­fé­lagi hennar eigi tvær mömmur. Móðirinn út­skýrir fyrir barninu að sam­kvæmt Móse­bók er hjóna­band milli karls og konu.

„Jæja. Það er í al­vöru mark­visst verið að kenna litlum börnum í sam­­fé­laginu okkar þetta. Að ást sé ekki gild nema hún sé á milli karls og konu. Og að „fólk geti breytt sér“ til þess að þóknast þessum svo­kallaða „vilja Guðs,“ skrifar Hin­segin­leikinn á Insta­gram, fræðslu­vett­vangur um fjöl­breyti­leikann..

„Það er mark­visst verið að búa til for­­dóma hjá litlum börnum. Börn fæðast ekki for­­dóma­full, en þetta er sannar­­lega leið til að gera þau það. Börn fæðast hins vegar vissu­­lega hin­­segin, og eiga aldrei að þurfa að reyna að „breyta sér“ til að vera sam­þykkt. Þau eiga að fá að vera þau sjálf. Og svona inn­ræting af hálfu hópsins sem þau fæðast inn í mun ekki gera neitt nema fylla þau skömm og sjálfs­hatri.“

„Elsku hin­­segin börn og ung­­menni sem fæðist inn í svona þanka­­gang, plís ekki vera hrædd við að vera þið sjálf. Við erum öll hérna fyrir ykkur,“ segir þar enn fremur.

Mynd­bandið má sjá hér að neðan.

Fyllir börn skömmi og sjálfshatri

„Það er mark­visst verið að búa til for­­dóma hjá litlum börnum. Börn fæðast ekki for­­dóma­full, en þetta er sannar­­lega leið til að gera þau það. Börn fæðast hins vegar vissu­­lega hin­­segin, og eiga aldrei að þurfa að reyna að „breyta sér“ til að vera sam­þykkt. Þau eiga að fá að vera þau sjálf. Og svona inn­ræting af hálfu hópsins sem þau fæðast inn í mun ekki gera neitt nema fylla þau skömm og sjálfs­hatri,“ segir enn fremur í færslu hinseginleikans.

„Elsku hin­­segin börn og ung­­menni sem fæðist inn í svona þanka­­gang, plís ekki vera hrædd við að vera þið sjálf. Við erum öll hérna fyrir ykkur,“ segir þar enn fremur.