Óeining er innan heilbrigðisgeirans um rýmri opnun á ferðir til og frá landinu, segir Már Kristjánsson yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans og formaður Farsóttanefndar í þættinum 21 í kvöld, mánudaginn 18.maí.
Már segist heyra það á mörgum kollegum sínum innan Landspítalans að þeim finnist bratt farið.
„Þau sjónarmið sem liggja þar til grundvallar er að við höfum í raun og veru gengið í gegnum faraldur sem er mjög alvarlegur víðast hvar erlendis og okkur hefur gengið vel, við vitum ekki ennþá hve margir eru búnir að þróa með sér ónæmi gegn veirunni hér“. Það þýðir að enn er ekki vitað hve stór hluti þjóðarinnar er næmur fyrir smiti, skyldi einhver erlendis frá bera það með sér. Mótefnamæling meðal hluta þjóðarinnar er svotil nýhafin en tekin verða sýni úr einhvers konar „slembiúrtaki“ sem getur sagt til um hvernig íbúar á Íslandi eru í heildina staddir varðandi mótefni og þá ekki lengur útsettir fyrir smiti. Már segir að eftir einhvern tíma þurfi að gera aðra slíka hópprufu til að sjá hvernig þróst
„Það kann að vera að enn sé stór hluti þjóðarinnar mjög næmur fyrir því að taka smit“.
Már bendir á að mikið sé um smit utanlands, mjög mikið í Svíþjóð og vaxandi fjöldi smitaðra víða í Bandaríkjunum svo dæmis séu tekin.
Landið opnast þann 15. júní næstkomandi. Það er að segja að þá gefst ferðamönnum kostur á að sleppa því að fara í tvegga vikna sóttkví ef þau gangast undir skimun á Keflavíkurflugvelli eða skili vottorði um að vera ekki með covid-19 veiruna. Fólk verður dvelja heima hjá sér eða á gististað þar til svar úr sýnatöku liggi fyrir síðar sama dag. Fólki verður skylt að að hlaða niður smitrakningar-appinu.
Már segir ekkert nema getgátur varðandi hvaðan ferðmenn munu koma: „Það er svolítið erfitt að sjá þetta fyrir, í hverju áhættan er fólgin og hverjir það verða sem vilja ferðast til Íslands“.
Henn bendir á að ein mikilvæg forsenda þess að vel gangi að halda smitum frá landinu þegar rýmkað verður um ferðir sé að styrkja veirufræðideild Landsspítalans.
Kallað var eftir áliti lækna á spítalanum um fýsileikann á að opna landið og framkvæmd skimunarinnar í Leifsstöð. „Öll sú framkvæmd er í eðli sínu mjög flóki, það þarf að búa til gervikennitölur og flytja sýni eða setja upp rannsóknaraðstöðu við landamærin og koma þessum upplýsingum svo til skila til ferðamannanna og síðan bregðast við, þannig að þetta er allt mjög flókið“, segir Már.
„Síðan er alveg ljóst að veirurannsóknardeild Landsspítalans sem mun keyra þessi sýni, hún hefur ekki nema takmarkaða getu eins og staðan er í dag“, segir Már og sérfræðingar spítalans hafi bent á það.