Leikarinn og rithöfundurinn Gunnar Helgason ákvað að svara því um hvað alþingiskosningarnar í lok mánaðar snúast um.
„Viljið þið vita um hvað kosningarnar snúast? Leitið ekki lengra! Hér kemur svarið!“ skrifar Gunnar á Facebook.
„Kosningar snúast ekki um heilbrigðismál, loftlagsmál, öryrkja- og ellimál eða fiskimál. Og þó ... þær snúast um allt þetta,“ bætir hann við.
„Þessar kosningar snúast einfaldlega um það hverjir eiga borga fyrir þetta allt,“ segir Gunnar og bætir við að sú deila snýst um hvort það sé þeir sem eiga mestan pening eða minnstan pening.
„Þar hafið þið það!“ segir hann svo að lokum