„Foreldrar og forráðamenn athugið. Börnum á grunnskólaaldri ber að nota búningsaðstöðu sem ætluð er þeirra kyni.“
Þessi skilaboð hafa valdið mikilli úlfúð á samfélagsmiðlum síðustu daga, en þau var að finna á miða í Salalaug í Kópavogi. Umrædan um skilaboðin hófst þegar að kona birti mynd af þeim á smfélagsmiðlum og spurði: „Eru þetta bara eðlileg skilaboð í sundlaug?“
Líkt og áður segir hafa miklar umræaður skapast vegna þessa. Til að mynda svaraði ein kona:
„Nei, man ekki eftir að hafa séð svona áður, ég fór 4-5 sinnum í viku í sund þegar ég bjó heima. Mér finnst ógeðslega skrítið ef starfsmenn eru að kynfæratjekka fólk, hvað þá börn - þetta er samt eitthvað nýtt og ekki í lagi finnst mér,“
Önnur kona sagði:
„Sonur minn var ekki tilbúinn til að fara einn i klefa 6 ára og neitaði að fara í sund nema einhver kk kæmi með sem var ekki í boði því ég var einstæð. Þetta eru bara kynfæri, hvers vegna að kenna svona ungum börnum að þau þurfi að fela þau f. öðrum kynjum?“
Og þá svarði einn netverji svona:
„Þetta virðist vera reglan í flestum sundlaugum. Ég þoli þetta ekki af svo mörgum ástæðum.“
Auk þess spurði einn maður:
„Vinnur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þessari sundlaug?“
Þó voru ekki allir á sama máli, ein kona sagði þetta:
„Þessi regla er ætluð til að minnka stríðni milli bekkjarsystkina etc. Mér þótti sjálfri mjög óþægileg tilhugsun þegar ég var 6 ára að skólabróðir kæmi kannski með í klefann því það vantaði kk kennara. (Það scenario kom s.s.upp, þaðan kom óþægilega hugsunin).“