„Það hefur verið þessi stemming að níða fólk niður. Öskra, rjúka út af fundum, vera með yfirlýsingar í fjölmiðlum gagnvart einstaka fólki, persónuárásir. Þetta er bara eitthvað sem er óbærilegt að vinna undir.“
Þetta sagði Drífa Snædal fráfarandi formaður ASÍ í viðtali við RÚV í dag og virðist vísa til hegðunar Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Líkt og alþjóð veit tilkynnti Drífa um afsögn sína í dag og nefnir erfið samskipti innan verkalýðshreyfingarinnar sem ástæðu.
Sólveig Anna kannast ekki við að hafa öskrað á Drífu, en viðurkennir að hafa hækkað róminn gangvart henni.
Sólveig virðist taka þessi ummæli til sín, en í tilkynningu Drífu í morgun vísaði hún til framferðis Eflingar og formanns VR í sinn garð til að útskýra afsögn sína.
„Ég hef aldrei öskrað á hana. En ég hef vissulega hækkað róminn þegar tekist hefur verið á um stór-pólitísk mál.“ skrifar hún á Facebook-síðu sína í dag.
Sólveig gefur einnig lítið fyrir ásakanir um að hún hafi rokið af fundum en minnist á eitt slíkt skipti þar sem hún sakar Drífu um að hafa ekki gefið sér færi á svara fyrir sig.
„Ég hef örsjaldan farið af fundum. Síðast þegar ég gekk af fundi var það vegna þess að varaformaður Eflingar hélt tölu á miðstjórnarfundi um það að ég væri að ljúga því að mér hefði verið hótað ofbeldi og eignaspjöllum. Þegar hún hafði lokið máli sínu óskaði ég eftir því að gerð væri athugasemd við framferði varaformanns. Það neitaði Drífa Snædal að gera og gerði mér það algjörlega ljóst að hún var í raun á sama máli og Agnieszka Ewa. Þá ákvað ég að fara af fundinum og tel ég að fleiri hefðu gert það sama í mínum sporum.“