Seinni undanúrslit Söngvakeppninnar Ríkisútvarpsins fer fram á laugardaginn og hefur RÚV verið að kynna keppendur sl. daga.
Úlfar Viktor Björnsson er þar á meðal en hann flytur lagið Betri maður. Úlfar fer um víðan völl í viðtali RÚV en hann er ættaður frá Skagaströnd en ólst upp í Grafarvogi. Hann opnar sig einnig um kynhneigð sína og segist nýta tækifærið til að vera staðar fyrir yngra fólk sem er á svipuðum slóðum og hann var á þeirra aldri.
Í viðtalinu greinir Úlfar frá því þegar hann vann í félagsmiðstöð og fékk slíkt tækifæri er ungur samkynhneigður drengur trúði honum fyrir stafrænu ofbeldi sem hann varð fyrir.
„Ég man bara skilaboðin sem hann var að fá, þetta var sjokkerandi. Þetta voru ljótustu skilaboð sem ég hef séð,“ segir Úlfar í samtali við RÚV.
Hann stappaði stálinu í drenginn og segir að nokkru síðar hafi hann hitt drenginn og þá var hann kominn út úr skápnum. Drengurinn þakkaði Úlfari fyrir stuðninginn.
„Hann sagði við mig: Úlfar, ég var farinn að trúa þessu fólki. Ég hélt að ég ætti bara ekkert skilið þessa jarðvist,“ rifjar Úlfar upp. „Þetta var búið að stimpla í hann aftur og aftur.“
Hægt er að lesa viðtalið við Úlfar á vef RÚV hér.