Rithöfundurinn Úlfar Þormóðsson skýtur föstum skotum á Sjálfstæðismennina Björn Bjarnason og Óla Björn Kárason, segir hann í grein á vef Kjarnans að þeir sem hlusti aðeins á þeirra málflutning séu fullir ranghugmynda.
Úlfar segir að Björn hafa eitt einkenni í skrifum sínum: „hatur hans og fyrirlitningu á Ríkisútvarpinu, Kjarnanum og Stundinni og öðrum þeim fjölmiðlum sem iðka rannsóknarblaðamennsku.“
Úlfar hvetur fólk samt til að lesa skrif hans: „En, í öllum bænum lesið greinarinnar hans. Þær birtast daglega á bjorn.is og í Morgunblaðinu, stundum nafnlausar í Staksteinum, en oftar undir nafni með ljósmynd af höfundinum.“
Hann segir Óla Björn líka „hatursmann fjölmiðla sem stunda rannsóknir“: „Til eru þeir sem halda því fram að þessi óvild þingmannsins stafi af því að hann setti DV á hausinn fyrir nokkrum árum, en þegar hann tók við því var það vel rekið blað og fyrirtæki og skilaði hagnaði. Ekkert veit ég um það. Hitt veit ég að margir vandaðir menn eiga hönk upp í bakið á honum; allir þeir sem greitt hafa kostnaðinn af framboðbrölti hans.“
Niðurstaðan sé eftirfarandi:
„Sá sem aðeins læsi greinar Björns Bjarnasonar og Óla Björns Kárasonar um þjóðfélagsmál væri haugfullur af ranghugmyndum. Og líka ef hann hefði tekið mark á orðum dómsmálaráðherra um heimsfaraldurinn. Því ætti það að vera þjóðfélagsleg skylda þeirra sem vilja fremur heyra það sem sannara reynist en bullið bert, að slá skjaldborg um þá fjölmiðla sem fara rétt með.“