Ugla: „Ótrúlega niðrandi að tala um hóp fólks sem einhverskonar vandamál eða byrði“

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir listfræðingur og aktívisti, gagnrýnir sveitarstjórnarráðuneytið harðlega fyrir að birta kostnaðartölur í tengslum við fatlað fólk. Kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu að rúmum 17,2 milljörðum króna hafi verið varið til fatlaðra á þessu ári.

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, formaður Trans Ísland, tekur undir með henni:

„Það kemur mér alltaf á óvart hvað fólk er fljótt að leyfa sér að segja að fatlað fólk sé „kostnaðarsamt“ eða sé svo mikil „byrði á samfélaginu“. Ef að okkar samfélag væri einfaldlega byggt upp til að mæta þörfum mismunandi hópa þá væru mikið af þeim vandamálum sem fatlað fólk stendur frammi fyrir úr sögunni,“ segir Ugla á Facebook.

„Vandamálið er samfélag sem gerir ekki ráð fyrir fötluðu fólki þrátt fyrir að þau hafi alltaf verið hér, og finnst það vesen að veita því þjónustu og aðgengi sem þau þurfa til að taka þátt í samfélaginu jafnt og annað fólk. Það er svo ótrúlega niðrandi að tala um hóp fólks sem einhverskonar vandamál eða byrði, sérstaklega þegar „vandamálið“ er eitthvað sem samfélagið sjálft skapar.“