Kristjón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri 24.is, hefur játað að hafa brotist inn í bíl Reynis Traustasonar, ritstjóra Mannlífs, í lok janúar og svo í kjölfarið inn á skrifstofu Mannlífs. Það játar hann í viðtali við Reyni sjálfan á vef Mannlífs í gærkvöldi.
Kristjón biðst afsökunar á því að hafa stolið mununum og segist telja að þeir muni skila sér en af skrifstofunni tók hann tvær tölvur og eyddi öllum fréttum og ritstjórnarefni af vef Mannlífs.
Í klukkutímalöngu viðtali fara þeir Kristjón og Reynir yfir aðdraganda þess að Kristjón braust inn og tengsl Kristjóns við auðmanninn Róbert Wessman. Þá segist hann hafa skýrt Róberti frá innbrotinu morgunin eftir að það var framið og að Róbert hafi þá sagst ekki mundu hafa samþykkt slíkt lögbrot og í kjölfarið ekki viljað ræða við hann aftur.
Kristjón hefur undanfarna mánuði ritstýrt og rekið miðilinn 24.is en í viðtali við Reyni segir hann Róbert Wessman hafa greitt 3,7 milljónir króna með vefnum á mánuði og að honum hafi liðið eins og þeir væru vinir.
Kristjón segir í viðtalinu að hann kunni að meta fyrirgefningu Reynis og að honum hafi snemma verið kennt að biðjast afsökunnar á því þegar honum verður á. Sama hversu erfitt það getur verið.
Hægt er að horfa á viðtalið hér á vef Mannlífs.
Segja má að samfélagsmiðlar logi eftir játninguna:
Getum við fengið einhvern body language sérfræðing til að rýna í hvort Kristjón sé að segja allan sannleikann hér? pic.twitter.com/Be9cEoePp3
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) March 5, 2022
🧵 2/2
— Hulda Hrund 🇺🇦 (@hulda_hrund) March 5, 2022
Var tilgangurinn að segja passlega lítið þannig að Wessman borgi honum fyrir það þegja og málið sé dautt?
Mannlegur harmleikur.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) March 4, 2022
Hvað var ég að lesa?
— Margrét Gauja (@MargretGauja) March 4, 2022
Er þetta lið að reykja krakk?https://t.co/WcsCuQ2Z9r
Ég horfði á allt viðtal Reynis Traustasonar við Kristjón Kormák og ég get fullyrt að ég er ca 20 prósent heimskari en ég var áður.
— Atli Viðar (@atli_vidar) March 5, 2022
Mér líður eins og ég hafi verið að sniffa teppalím á Hlemmi.
Gamla Hlemmi.
Ekki núna-Hlemmi.
Þetta tweet var í boði Verkfæralagersins. pic.twitter.com/IlXZ7ZLoLI
Time is a flat circle.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) March 4, 2022
Héðan í frá skiptist mannkynssagan í tvo hluta: fyrir og eftir Játninguna
— Hekla Elísabet (@HeklaElisabet) March 5, 2022
Jeff Bridges sem Reynir Trausta
— Hekla Elísabet (@HeklaElisabet) March 5, 2022
Adam Driver sem Kristjón Kormákur
Patrick Wilson sem Róbert Wessmann
jack russell terrierinn Moose sem verkfæralagershundurinn https://t.co/GpJXT2ZzIc pic.twitter.com/ePHQcO3Wqf