Innlegg fræðsluveitunnar Fortuna Invest inn í þjóðfélagsumræðuna setti nánast Twitter á hliðina. Telja margir þessa ádeilu á skólakerfið hitta beint í mark á meðan aðrir telja illa vegið að Gísla Súrssyni.
Rakel Eva Sævarsdóttir, Rósa Kristinsdóttir og Aníta Rut Hilmarsdóttir reka Fortuna Invest en því er ætlað að skapa meiri fjölbreytileika á fjármálamarkaði í gegnum fræðsluvettvang á Instagram.
Hér má sjá upprunalega innleggið:
Vá. Inspo. pic.twitter.com/pLUy58WfMa
— Grétar Þór (@gretarsigurds) November 22, 2021
Margir notuðu svo tækifærið til að búa til brandara:
— AGG (@arnorgg) November 22, 2021
— Jónas Már (@JTorfason) November 22, 2021
— Bjarki Sigurðsson (@bjarki_sigurdss) November 22, 2021
— atli (@atliatliatli) November 22, 2021
— Björg (@BjorgSteinunn) November 22, 2021
— sóllilja (@freyjaplaya) November 22, 2021
— [email protected] (@SVigfusson) November 23, 2021
Má segja að umræðan hafi komið Gísla sögu aftur á kortið:
Auður Vésteinsdóttir er aðal söguhetjan í Gísla sögu Súrssonar.
— Andrea Sigurðardóttir (@andreasig) November 23, 2021
“Haf nú þetta og með bæði skömm og klæki. Skaltu það muna, vesall maður, meðan þú lifir að kona hefur barið þig. En þú munt ekki að heldur fá það er þú vildir.“
Sum sé alvöru kvenskörungur.
Hulda María er ekki sátt við þetta innlegg Fortuna Invest:
„Sem skólamanneskja á ég ógeðslega erfitt með þetta "höldum áfram með Gísla sögu" dæmi sem er í gangi. Það er nefnilega alveg fjármálafræðsla líka í skólunum sko,“ segir hún. „Annað útilokar ekki hitt frekar en stærðfræði útilokar íslensku. Svo er Gísla saga bara mjög skemmtileg!“
Eiríkur segir svo:
Ég í skóla: "Hvernig virkar minidiskspilari?"
— Eiríkur Kristjánsson (@Eirikur_Gauti) November 22, 2021
Ég í skóla: "Hvernig framsel ég ávísun?"
Ég í skóla: "Hvernig rek ég vídjóleigu?"
Skóli: "Hér eru grundvallaratriði rökhugsunar og tjáningar. Eftirfarandi mistök hafa verið gerð í mannkynssögunni. Forðist þau endilega."