Twitter efast um tíst Trumps: Forsetinn ýjar ítrekað að kosningarsvindli

Twitter hefur nú sett fyrirvara á þrjár færslur frá Donald Trump Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlinum en Trump hefur síðastliðinn klukkutíma sett inn nokkrar færslur þar sem hann efast um lögmæti kosninganna og ýjar að kosningarsvindli.

Trump setti inn færslu í nótt þar sem hann sakaði Demókrata og Biden um að reyna að „stela“ kosningunum og sagði að ekki mætti greiða atkvæði eftir að kjörstaðir loka. Twitter sagði færsluna vera misvísandi þar sem ekkert bendir til að fólk hafi verið að greiða atkvæði eftir að kjörstaðir lokuðu.

Hann getur þó hafa átt við að atkvæði mættu ekki berast eftir að kjörstaðir loka en það er heldur ekki satt þar sem fjölmörg ríki mega taka við póstatkvæðum dagana eftir kjördag svo lengi sem þau voru sett í póst fyrir eða á sjálfan kjördag.

Seinni atkvæði betri fyrir Biden

Eftir að fleiri atkvæði fóru að berast í ríkjum á borð við Michigan, Wisconsin, Georgíu og Pennsylvaníu fór Biden að sækja í sig veðrið og er nú yfir Trump, alla vega í Michigan og Wisconsin. Trump birti nokkrar færslur en í einni þeirra vísaði hann til þess að hann væri yfir í flestum lykilríkjum en að forskot hans hafi horfið fljótlega þegar póstatkvæði fóru að berast.

Þá vísaði hann meðal annars til færslu frá íhaldsmanninum Matt Mackowiak, sem sagði að 100 prósent nýrra atkvæða í Michigan hafi farið til Bidens. „HVAÐ Á ÞETTA AÐ ÞÝÐA?“ skrifaði forsetinn þegar hann endurdeildi færslu frá grínistanum og leikaranum Matt Walsh, sem sagði að enginn gæti litið á niðurstöðurnar og tekið þær alvarlega.

Óhætt er að segja að niðurstöðurnar í nótt hafi komið Demókrötum á óvart en flestar skoðanakannanir bentu til þess að Biden myndi vinna stórsigur. Annað er þó uppi á teningnum núna þar sem staðan er hnífjöfn en ekki er búið að telja öll atkvæðin í þó nokkrum ríkjum.

Biden er þó bjartsýnn á að hann vinni kosningarnar og Kamala Harris, varaforsetaefni Bidens, minnir fólk á að þessu sé ekki lokið fyrr en öll atkvæði berast.