Tvö þúsund um­sóknir um starf kyn­líf­stækja­prófara

„Á­huginn var mun meiri en við bjuggumst við. Ég er ekki með alveg ná­­kvæma tölu á um­­­sóknum núna en mér finnst lík­­legt að þær séu núna um 2.000 talsins.“

Þetta segir Eva Brá Önnu­dóttir, einn af eig­endum hjálpar­tækja­verslunarinnar Losti.is, í sam­tali við vef Frétta­blaðsins.

Fyrir­tækið aug­lýsti eftir kyn­líf­stækja­prófara um miðjan apríl­mánuð og hefur á­huginn ekki látið á sér standa. Um tvö þúsund Ís­lendingar eru sagðir hafa sótt um starfið og eru þeir á öllum aldri – þeir yngstu eru 18 ára og sá elsti kominn vel yfir sex­tugt.

Eva segist telja að á­huginn sé til marks um það að kyn­líf og kyn­hegðun fólks sé ekki jafn mikið „tabú“ og áður. „Það er ekki jafn mikil feimni í kringum þetta og áður, sem við erum ó­­­trú­­lega á­­nægðar að sjá. Ég er ekkert viss um að svona margir hefðu sýnt þessu svona á­huga fyrir nokkrum árum,“ segir hún.

Nánar er fjallað um málið á vef Frétta­blaðsins.