Tveir með fyrsta vinning í lottóinu - Fá 40 milljónir króna hvor

Tveir miðahafar skipta með sér fyrstu vinningi í útdrætti kvöldsins í lottóinu og hlýtur hvor þeirra rúmlega 40 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keyptir á N1 Bíldshöfða og á lotto.is. Potturinn í kvöld var fimmfaldur.

Tveir miðahafar voru með bónusvinninginn og hlýtur hver þeirra rúmlega 544 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á N1 á Egilsstöðum og Söluskálanum Björk á Hvolsvelli.

Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og hlýtur hann 2 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur á lotto.is.

Tíu voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá þeir 100 þúsund krónur hver í vinning. Heildarfjöldi vinningshafa var 13.774.