Tveir Ís­lendingar á lista For­bes yfir ríkustu menn í heimi – Sjáðu hversu mikið þeir eiga

Fjár­festirinn Björg­ólfur Thor Björg­ólfs­son og Davíð Helga­son eru einu tveir Ís­lendingarnir sem eru álista For­bes yfir ríkustu menn í heimi.

Björg­ólfur Thor situr í 1.238 sæti á list­an­um og eru eign­ir hans metn­ar á 2.5 millj­arða Banda­­ríkja­dala sem sam­svarar rúm­legar 323 milljörðum ís­lenskra króna

Björg­ólf­ur hefur gert öflug við­skipti á síðasta ári og liggur mun hærri á listanum nú í en fyrra þegar hann var í 1.444 sæti en þá voru eign­ir hans þá metn­ar á 2,2 millj­arða Banda­­ríkja­dala.

Davíð Helga­­son stofn­andi Unity er neðar­lega á listanum en hann situr í 2.448 sæti en 2.668 nöfn eru á listanum yfir ríkasta fólk í heiminum. Eign­ir Davíðs eru metn­ar á 1,1 millj­arða Banda­­ríkja­dala sem sam­svarar 142 milljörðum ís­lenskra króna.

Þrátt fyrir að vera neðar­lega er Davíð á upp­leið því hann var í í 2.674 sæti á lista For­bes í fyrra.