Tveir dóu úr Covid-19 um helgina: Már segir fólk vera að veikjast mjög hastarlega

Tveir einstaklingar létust um helgina vegna Covid-19 hér á landi um helgina. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, segir þetta í samtali við Fréttablaðið og bætir við að fólk sé að veikjast mjög hastarlega af veirunni, jafnvel einstaklingar sem eru bólusettir.

Veiran hefur sótt í sig veðrið að undanförnu eins og greint var frá fyrir helgi og sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að um 150 til 200 manns væru að greinast með smit á degi hverjum. Þá virðist eitthvað vera um alvarleg veikindi en fyrir helgi lágu þrír á gjörgæsludeild.

Már segir í Fréttablaðinu að alls séu nú 34 sjúk­lingar inni­liggjandi með Covid á legudeildum og bráða­mót­töku, dreifðir um níu starfs­stöðvar Land­spítala.

Þórólfur sagðist fyrir helgi ekki hafa trú á því að takmarkanir yrðu hertar á nýjum leik. Undir það tekur Már og segir: „Það held ég sé nú ó­skap­lega lítil stemning fyrir því.“