Tveggja tíma við­tal við Jón Gunnar Geir­dal í vaskinn: „Mar­tröð allra hlað­varps- og fjöl­miðla­manna“

Hlað­varps­þáttur Birkis Karls Sigurðs­sonar og Leifs Þor­steins­sonar, Chess after Dark, lenti heldur betur í leiðin­legu at­viki þegar þeir tóku at­hafna­manninn Jón Gunnar Geir­dal í við­tal á dögunum.

Í nýjasta þætti þeirra grínast þátta­stjórn­endur og Jón Gunnar með að þetta sé önnur til­raun þeirra til að koma við­tali í loftið en í fyrra skiptið átti sér stað mar­tröð allra hlað­varps- og fjöl­miðla­manna – það gleymdist að kveikja á upp­tökunni, sam­kvæmt frétt DV.

„Ég held að ég muni aldrei gleyma þessu kvöldi. Þetta er lík­lega botninn á hlað­varps­veg­ferðinni okkar,“ segir Leifur í sam­tali við DV.

„Við­talið var í rúma tvo tíma og var alveg frá­bært. Það var mikið hlegið og enda­laust af sögum sem fengu að fjúka,“ segir Birkir.

Hægt er að lesa um­fjöllun DV um þetta skondna málhér.