Tvær konur í hópi sex­tíu launa­hæstu Aust­firðinga í fyrra

Einungis tvær konur voru í hópi launa­hæstu íbúa Fjarða­byggðar og Múla­þingi í fyrra. Konurnar, María Ósk Krist­munds­dóttir og Þóra Soffía Guð­munds­dóttir, eru báðar bú­settar í Múla­þingi og eru í 16. og 22. sæti yfir launa­hæstu ein­stak­linga frá því sveitar­fé­lagi.

Þetta kemur fram í um­fjöllun Austur­gluggans um tekju­hæstu ein­stak­linga í Fjarða­byggð og Múla­þingi, sam­kvæmt á­lagningar­skrá Ríkis­skatt­stjóra sem lögð var fram fyrr í þessum mánuði.

Launa­hæsti ein­stak­lingurinn í sveitar­fé­lögunum tveimur var skip­stjórinn Sigurður Bjarna­son en mánaðar­laun hans í fyrra voru rétt rúmar sex milljónir, eða 6.000.168 krónur.

Fimm launa­hæstu ein­staklingarnir störfuðu allir sem skip­stjórar í fyrra en á listunum tveimur má finna ellefu ein­stak­linga sem höfðu það starfs­heiti.

Nánari um­fjöllun um málið má finna hjá Frétta­blaðinu.